Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Gym

Búið að vera hressingur niður í bæ síðustu daga " sumir aðeins of mikið í gírnum"

Sjálfu fór ég á þriðjudagskvöldið einn hring á Austurvöll enda var kallinn að vinna og kíkti i 3 mín .

þarna var bál og söngur og eins og einn sagði " vantar bara núna Árna J. til að leiða sönginn"

 

Núna er kallinn að leyta að réttum stað til að pumpa lóðinn að krafti og koma 3 staðir til greina.

En endanleg ákvörðun verður tekinn í hádeginu á föstudag. " byrja þá af krafti " kaupi þá 6mánaða eða árskort. ekki nokkur spuring með það.

 

Er að skoða verð til Californiu " jájá.. maður verður að skoða málin" Wizard

Las skrifinn hennar Heiðu Þ. vinkonu minnar og hvað á maður að segja " fyrirgefningin er lykillinn" mikið rétt. " en mikið rosalega er erftitt að fyrirgefa sumu fólki" en það er allt hægt ef maður fyllir hjartað í sér af kærleik.

 

Have a nice day


Leiguverð

Ég leigi studíóíbúð  hjá Félagsbústöðum Reykjavíkur og markmið Félagsbústaða er eftirfarandi.
  • Stefnt að breytingu á rekstri félagslegs leiguhúsnæðis í borginni í líkingu við það sem tíðkast í sambærilegum rekstri í Vestur-Evrópu.
  • Að beita í rekstrinum faglegum vinnubrögðum í þeim tilgangi að halda leiguverði í lágmarki og bæta þjónustu við leigjendur.
  • Að auka framboð á félagslegu leiguhúsnæði í borginni til þess að mæta húsnæðisþörf þeirra sem ekki geta staðið undir greiðslubyrði lána vegna íbúðakaupa og eiga ekki kost á leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum

Í júní 2008 var ég að borga um 42.000- 45.000 á mánuði eftir húsaleigubætur. 

í Janúar 2009 er ég að borga um 70.000 eftir húsaleigubætur

" Vísitölutryggt hjá þeim" ;) Great

en Markmiðinn hafa greinilega farið í öfuga átt hjá þeim.

Samkvæmt fréttablaðinu í dag þá er leiguverðið hjá þeim 60.000 með 1 herbergi. leiguverðið hjá mér er 94.000,- 

Hressandi " það er víst verið að skoða þetta allt saman í dag "   Wizard


Mrs L.

Helgin búinn svona nánast og kallinn á vaktini.  Í gær var annsi mikið húllum hæ og gaman en árshátíð Al-Anon klúbbsins var haldin í gær og var margt um manninn og mikið borðað og hlustað á skemmtilega Performera á sviðinu. fór svo með The Gospel Chicks niður í bæ í smá tíma.  Magnað kvöld var mættur heim í kotið kl 3 am.

Búið að vera ágætis helgi og mér hefur liðið alveg frábærlega síðustu daga " langt síðan maður var svona hress og kátur"  enda hafa skemmtilegir og óvæntir hlutir verið að gerast. :) ...

Skólinn byrjaður og er það vel.  

Eitt er alveg á hreinu " þetta ár verður gott eyddi alltof miklum tíma í akkúrat ekkert í fyrra " svo mikið er víst.

Held að það besta sé að fara að koma og eitthvað magnað að fara að koma upp. sumt er komið nú þegar Wizard

 

eigið góða viku.

Það var kuldalegt um dagin þegar ég var að bíða eftir SEXuni. á Lækjartorgi.

 

Gísli 17.01.09.09am


Que dios te Bendinga

 Ákvað að setja hérna örstutt skilaboð .

Kominn með gamla gsm númerið aftur

sími : 692-6002

Annars er margt fínt að frétta sem ég segi ykkur fljótlega en mál málana er þó að ég var bara að koma heim úr vinnunni og þurfti að bíða eftir strætó í morgunsárið aðeina lengur en ég hélt en þá er bara að drepa tímann og gera eitthvað sniðugt þarna á lækjartorgi nú í morgunsárið alveg orðinn Hellaður af þreytu eftir að hafa verið einn á Hótelinu í nótt. 

Dúndraði mynd af Kvikindinu.

 

 

 

 

May the force be with you

May the force be with you

 


Já sæææl

Höfðatalan Klassíska.

 

nafnið mitt Gísli Torfi er samkvæmt höfðatölu " nánast heimsmet"


mbl.is Næstum allir á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2009

Það er bara komið 2009 og bara ekkert nema frábært um það að segja.

 

Árið 2008 var ágætis ár " lærði margt og ekkert " svoleiðis er það nú bara " sem er snilld" 

 

Kynntist Ýmsu sniðugu á árinu og ef það er eitthvað sem ég vil fá á árinu 2009 er það frekar einfalt.

" Hamingju og alveg bara slatta af henni og frið og ró í hjartað " 

" Kjark og þor til að takast á við allt sem verða á vegi mínum "  

" fylgja því sem er gott og rétt og vera með þá fullvissu að Guð setji svo síðasta kryddið í þær áætlanir sem ég mun fara í og gera einarðlega og af alúð"  Ég er nefnilega viss um það að ég fái mótframlag hjá honum þegar ég geri hans vilja.

 

Held að maður hafi nú bara fengið nóg af verkefnum á síðasta ári sem maður hefur tæklað bara ágætlega þau voru af ýmsum gerðum verkefnin og mesta furða að maður hafi komist í gengum þetta tiltölulega klapplaust"   auðvitað gerði maður vitleysur og allt það en sem betur fer þá veit maður af þeim og reynir að taka þær bara inní reynslubankann.

Ég ælta svo að þykja vænt um sjálfan mig og aðra og ekki vera  að dæma nokkurn mann heldur ryena að elska allt í kringum mig eins og ég hafi aldrei verið særður. finnst það ágætis nesti svona inní nýja árið.

 

Í dag er mér bara hugsað til fjölskyldu minnar og vina og sérstaklega til ákv aðila og vona svo innilega að árið 2009 verði okkur öllum það gæfuríkasta og yndislegasta ever.

 

Ég ætla að leitast við það að vera auðmjúkur og hafa fúsleika til að gera það sem er rétt.

Gleðilegt ár.

G


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband