Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Afhverju blótar fólk

Hef verið að velta fyrir mér að setja aðeins á blað mínum hressilegum hugsunum og trú því að ég hef verið að skoða ýmiss blog hér á svæðinu og langar að koma á framfæri til alþýðunar mínar mjög svo ekki nýju hugmyndum um lífið . En það er nú svo að ég hef oft spáð í því afhverju fólk blótar og skrifi meira segja blótsyrði á sms sendingum eða á netinu spáið í þvi hvað það myndi nú sparast í orðum að sleppa því og ég tala nú ekki um þessar meðvituðu eða ómeðvituðu neikvæðu áhrif sem maður fær í öllu sínu blóti svona eins og að taka ákvörðun um að maður sé akkúrat núna neikvæður og ekkert skal hagga því. Sjónvarp er mikill áhrifavaldur í lífi fólks og við gónum á það tímunum saman og horfum uppá alltof mikið ofbeldi í sjónvarpinu og hvað gerir það manni, ef maður er sæmilega tengdur sjálfum sér þá hefur það áhrif..Hef ég val um á hverjum degi hverning dagurinn verði?   Ég vel að eiga góðann dag og fylla mig að innann af jákvæðum straumum og stilli viðhorf mitt til manna og hluta á jákvæða bylgjulengd það tekst oftast með því að ég byrji hvern dag á að tala við föður minn  bróðir og vin .. Hver á að dæma mig fyrir mín verk er það ekki sá sem er yfir allt hafið og gerir allt nýtt ( er ekki að tala um sjálfstæðisflokkinn ) kastið þér steininum sem syndlaus er sagði meistarinn og ef það er einhver mannsál á jörðini sem er syndlaus þá vinsamlegast sendið mér email.. en já var svona aðeins að spá í þessu og hugsa ef allir væru jákvæðir og uppfullir af kærleik til allra manna og gætu verið það auðmjúkir að dæma engann mann .. ég þó reyni að gera mitt besta en ég syndga á hverjum degi en ég veit að mér er fyrirgefið því ég er mannlegur .

Leðurtuðra & KLÓR

já þetta hefur verið dagur viðburða í boltanum í dag og dagur móðir minnar sem er 56 ára í dag.. til hamingju með það mamma mín .. Valur íslandsmeistari og HK hélt sér uppi  sem er stórgóður árangur hjá báðum liðum og víkingur renndi sér niður í 1.deild og þurfa því að fara til siglufjarðar á næsta ári til að spila fótbolta .. Þróttur fór upp í úrvalsdeild í gær í sandgerði og er það Glæsibær.. Loksins unnu mínir menn leik í úrvalsdeildini á móti Wigan í dag þvílík léttmjólk að ná að hala inn þremur stigum því Gunners eru að vinna allt og alla um þessar mundir skiptir engu ef andtæðingurinn skorar þá dæma þeir það bara af... Nærbuxna-Freddie setti mark fyrir Landsbankann í dag en það var ekki leyft vegna þess að arsenal þarf á þessum 3 stigum að halda til að vera á toppnum... Britney er á Lerý-i in the USA og kannski kominn tími til að hún fari nú bara að koma sér til Kýpur í góða sjóstangaveiði þar sem hún getur tæmt hugann og fattað að hún er með hausinn ofan í kúamýkju og skráð sig á Hlaðgerðarkot til að vinna bug á sínum málum sem eru jafn stór og Peter Crouch ...spaugstofan var að enda og gaman að svona forn og þjóðlegur þáttur sé enn á dagskrá svo við getum nú ennþá fattað að við séum ekki að eldast.  Ég fór í fótbolta í sporthúsinu í dag með Samhjálpurum og var það Hressingur og kvikindið svitnaði eins og Göltur .. er að spá í að hafa það gott í kvöld og skella mér í strætó niður í bæ og fá mér cafe latte ... eigið þið ánægjulega daga... G

Fann þetta á Panama.. ég spyr hvar var Rooney. :)

Ronaldo réði gleðikonur fyrir sig og vini sína

Brasilísk gleðikona segist hafa skorað ansi feitt verkefni á dögunum þegar hún var ráðin til að taka þátt í fjögurra klukkustunda orgíu með einum þeim allra heitasta í dag, Cristiano Ronaldo, og tveimur af nýjum liðsfélugum hans hjá Manchester United. Ronaldo réði hina 24 ára gömlu Juliönu Baltrusch og fjórar vinkonur hennar til að mæta í villt partý í 400 milljóna króna villunni sinni en tilefnið var að fagna 1-0 sigri Manchester United á Tottenham þann daginn. Á staðnum voru einnig knattspyrnumennirnir Nani, 20 ára, og Anderson, 19 ára, auk tveggja vina hjartaknúsarans sjálfs.

Juliana segist meðal annars hafa dansað fyrir Ronaldo og svo veitt Nani kynferðislegan greiða og á endanum farið inn í herbergi með Anderson þar sem villt kynlíf og flengingar áttu sér stað.

„Ég fékk símtal vegna verkefnisins og mér var sagt að kúnninn væri þekktur, en ég hafði ekki hugmynd um hver hafði pantað mig fyrr en ég mætti. Við vorum allar mjög spenntar og flissuðum mikið af því að þetta var svo mikið leyndarmál. En það gat ekkert undirbúið okkur undir það áfall sem við fengum þegar við svo mættum á staðinn.

Við komum inn og þar sátu Ronaldo, Nani og Anderson afslappaðir í sófanum. Ég þekkti Ronaldo strax og mig langaði mest að bjóðast til að gera þetta ókeypis!

Við spjölluðum við þá og þeir voru orðnir mjög spenntir. Nano var kominn úr að ofan og ég heyrði að Ronaldo sagði eitthvað um brjóstin mín á Portúgölsku. Svo sögðu þeir að við mættum aldrei segja neinum frá þessu.

Ég fór að dansa við Ronaldo, hann er ótrúlega vel vaxinn! Áður en ég vissi af þá vorum við farin að kyssast og ég þuklaði hann allan. Svo færðum við okkur öll í sundlaugina hans þar sem hitnaði virkilega í kolunum og við fórum að fara í afsíðis í pörum. Ég fór með vini Ronaldos og svaf hjá honum í einu svefnherberginu.

Að því loknu fórum við í annað herbergi þar sem Nani og Andrson voru í fjórleik með tveimur stelpunum og allir hinir stóðu bara og horfðu á. Að lokum gengum við óvart inn á Ronaldo og Hönnuh, eina gleðikonuna, þar sem þau höfðu greinlega nýlokið sér af þar sem hann lá allsber og móður við hliðina á henni.

Síðar um kvöldið vorum við öll í svaka stuði og strákarnir voru allir allsberir á vappinu um húsið. Það var mikið fjör og þar sem Portúgalska er móðurmál mitt þá gat ég spjallað heilmikið við þá. Svo bauð Anderson mér upp í herbergi þar sem ég svaf hjá honum en gældi líka svolítið við Nani.“

Það er því ljóst að loforð Juliönu um að þegja yfir atvikinu var lítils virði.



Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband