OKT

Mánudagurinn 1.okt þessi mánuður minnir mig alltaf á Bensín og þá staðreynd að september sé búinn og jafnvægi sé komið á allt sem byrjar með látum í ágúst lok með því að skólar byrji og allir kaupi sér kort í ræktini og ætla í átakið í kjólinn fyrir jólinn og að sjá í tólinn fyrir jólin og allt það.. réttir og stóðréttir og svona hlutum, enski boltinn og ég veit ekki hvað .. en núna er komið jafnvægi á þetta allt því okt er genginn í garð og fyrsti vetrardagur að nálgast sem er frekar fyndið því það er í mínum huga bara tvær árstíðir hér á skerinu veturinn sem var og veturinn sem er .. en kannski er þetta að breytast það var nú ágætt í sumar vel yfir 10 gráður allt sumarið en fór mest í 48 gráður hjá mér þegar ég skellti mér til Fuerteventura í viku algjörlega einn á báti í fyrsta skipti úti í löndum og var það bara hin mesta skemmtun.. komst að því að ég er bara ágætis náungi.. ég gerði akkúrat það sem Gísla finnst skemmtilegast og hlustaði á tónlist sem Gísla finnst skemmtileg og fílaði það í botn .. það var bara magnað að fara með sjálfum sér í ferðalag.. Í dag ætla ég að vera þakklátur og glaður og ganga í Levis gallabuxunum mínum sem eru í þvotti núna og vera svalur eins og Hasselhoff var árið 1990 í rauðu lendarskýluni sinni og enda svo daginn á því að lesa bókina Endurminnigar Randvers Skarphéðinssonar skjaldbökusala.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að heyra frá þér enn skemmtilegra væri að ná kaffibolla saman.

Þórdís (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 09:53

2 Smámynd: Gísli Torfi

já við þurfum að fá okkur kaffi bráðlega :)

Gísli Torfi, 2.10.2007 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband