Einn svona nettur inn í vikuna

Í sveitinni

Það var eitt sinn ljóska sem var orðin þreytt á ljóskubröndurum og vildi helst koma sér úr þessum minnihlutahóp.Hún ákvað því að lita á sér hárið brúnt og koma sér þannig í hóp þeirra sem tekið er mark á.Eina helgi í ágúst fór hún í bíltúr uppí sveit.Hún var ekki komin langt þegar hún sá féhirði smala fjöldann allan af kindum. Verandi dolfallin aðdáandi fjórfætlinga stoppaði hún bílinn og gaf sig á tal við féhirðinn.

Eftir nokkurt smátal spurði hún hirðinn hvort að hún mætti eiga eina kind ef hún gæti giskað á hversu margar kindur hirðirinn var með.Hirðirinn var viss í sinni sök um að það gæti hún aldrei og tók áskoruninni."Ljóskan"okkar hugsaði sig vel um og að lokum kom hún með töluna 294.

Hirðirinn trúði ekki sínum eigin eyrum því að það var akkúrat fjöldi kindanna. En vegna þess að hann var heiðarlegur að eindæmum leyfði hann henni að velja eina kind."Ljóskan"tók sér góðan tíma en að lokum valdi hún eina sem var mun líflegri en allar hinar.

Hirðirinn leit á hana og spurði: "Ef ég get giskað á rétta háralit þinn,má ég þá fá hundinn minn aftur?".

ICONATOR_c43ffc93c436d01d494e2e796beaf322

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

he he he he góður.

EN hún gat amk giskað á hvað kindurnar voru margar.

Linda litla, 14.4.2008 kl. 08:32

2 Smámynd: Fiðrildi

 . . hvað í andskotanum var hann að gera með 249 hunda.  Damn . . og ég er dökkhærð frá náttúrunnar hendi

Fiðrildi, 14.4.2008 kl. 15:35

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hmm..... sem fyrrverandi ljóska og soon to be again, get ég samt alveg hlegið að ljóskubröndurum

Lilja G. Bolladóttir, 15.4.2008 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband