Þetta er fyrir fallega fólkið

Ég var bara að hugsa um hvort þú hafir gleymt mér, ég er sjúkdómurinn þinn.

Ég hata fundina, ég hata æðri mætti, ég hata alla sem hafa prógram.

Skilaboð: Allir sem komast í snertingu við mig, ég óska ykkur kvalar og dauða. Leyfið mér að kynna mig, ég er sjúkdómurinn fíkn.

Ég er gráðugur, falskur og sterkur. Svona er ég. Ég hef drepið manneskjur í milljóna tali og er ekki enn ánægður. Ég elska að koma þér á óvart. Ég elska að þykjast vera vinur þinn og huggari, ég hef huggað þig, eða hvað? Var ég ekki til staðar þegar þú varst einmanna? Þegar þú vildir bara deyja, var það ekki ég sem þú hrópaðir á? Ég var hjá þér. Ég elska að láta þér líða illa. Ég elska að láta þig gráta, eða öllu heldur að ég fái þig það lokaða tilfinningalega að þú getir hvorki fundið sársauka né hamingju. Þegar þú merkir ekkert tilfinningalega, þá er ég ánægður og allt sem ég bið þig um eru miklar kvalir. Ég hef alltaf verið til staðar fyrir þig. Þegar allt gekk vel hjá þér, bauðst þú mér inní líf þitt. Ég var sá eini sem hélt með þér og saman eyðinlögðum við allt það góða sem var í lífi þínu.



Fólk tekur mig ekki alvarlega. Það tekur heilablæðingu, hjartaáfall og sykursýki alvarlega, heimskingar.. Ég er sjúkdómur sem allir hata, en ennþá kem ég óboðinn. Þú velur að hafa mig. Það eru svo margir sem hafa valið mig fram fyrir venjulegt líf og frið. Meira en þú hatar mig, hata ég 12Spora prógrammið, Æðri mátt þinn og fundina hata ég. Allt þetta svíkur mig og ég get ekki unnið eins og ég vill. Nú verð ég að hafa mig hægan. Þú sérð mig ekki en ég er hér.

Þangað til við hittumst aftur, ef við hittumst óska ég þér kvalar og pínu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

Já svona er þetta bara

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 14.9.2008 kl. 17:26

2 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Er einhver flensa að ganga ?

Eysteinn Skarphéðinsson, 14.9.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Þ Þorsteinsson

Hugurinn er hverfull og meir en ég get ímyndað mér, því ber að þakka það sem við höfum og rækta kærleikan í sálum okkar.

Þ Þorsteinsson, 14.9.2008 kl. 23:40

4 Smámynd: Gísli Torfi

Já og af Kærleik fékk maður nóg af í veganesti hjá Ömmu og Afa í miðhúsum...

Gísli Torfi, 15.9.2008 kl. 00:15

5 Smámynd: Hulla Dan

Ég get svo svarid, ég hélt fyrst ad tú værir ad tala um einn af mínum fyrrverandi

Gódur pistill hjá tér

Hulla Dan, 15.9.2008 kl. 01:16

6 Smámynd: Gísli Torfi

Já minnir að Páll Einarsson hafi skrifað þennan pistill ..

Gísli Torfi, 15.9.2008 kl. 07:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband