2 Góðir í morgunsárið
27.11.2007 | 05:43
Hef ekki áreiðanlegar heimildir fyrir því að þetta hafi í raun gerst í Hagkaupum, hehehe.
Mjög hávær, óaðlaðandi (ljót og feit) og hreinlega brussuleg kona kom inn í
Hagkaup einn daginn með börnin sín tvö, dró þau sitt í hvorri hönd,
skammaðist í þeim og var hin versta um leið og hún gekk inn ganginn. Strákur í kerrunum sá hana og heilsaði: Góðan daginn frú og velkomin í
Hagkaup. En yndisleg börn sem þú átt. Eru þetta tvíburar?
Forljóta konan hætti að öskra á börnin og sagði við strákinn: Held nú
síður. Sá eldri er 9 ára og hitt er að verða 7. Hvers vegna í fjandanum
heldurðu það. Ertu blindur eða bara svona heimskur!?
Ég er nú hvorugt, frú mín. Segir strákurinn. Ég get bara ekki
ímyndað mér að þú hafir fengið að sofa hjá tvisvar sinnum!! Hafðu það gott í dag
og takk fyrir að versla í Hagkaup
OG
Þessi brandari er frekar nasty en samt nokkuð fyndinn
Eiginmaðurinn segir við konuna sína:
Ég þori að veðja að þú getur ekki sagt eitthvað við mig sem bæði gerir mig
glaðan og dapran, í sömu setningunni.
Konan hugsar sig um svolitla stund og segir svo:
Þú ert með stærra typpi en bróðir þinn.
Athugasemdir
hhaha ansi góðir. Þessi síðari mjög beittur
Hafðu það gott
Sædís Ósk Harðardóttir, 27.11.2007 kl. 21:13
hhahahhhahhahh þessir voru góðir
Anna J. Óskarsdóttir, 27.11.2007 kl. 21:48
hahahaha hvor þeirra var nasty? dí....aftur og enn er ég í kasti!
Heiða Þórðar, 27.11.2007 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.