Afmælishelgin afstaðin

Höfðabakki 1 3hæð með útsýni yfir þokukenndan Grafarvog eða eru gluggarnir kannski orðnir svona gráir og máðir eftir allar lægðirnar sem hafa komið á skerið síðustu daga..Wizard

Satt best að segja hefur þetta veður ekkert verið að trufla mig hef nefnilega verið að hneppa öðrum hnöppum og lifa í mínu himnaríki laus við ok tíðarandans þar sem jólastress og vinnutarnir gera menn gráhærða og konur skapvondar .. ég hef bara verið eins og Gvendur dúllari og leikið mér í mínu himnaríki... Wizard

í síðustu viku fór í ég leiðangur og skilaði sá leiðangur mér því að helgin var nánast undirlögð af sófasetu og öðrum þægindum.. já ég gerði mér ferð allaleið í ríki Gunnars Dimmraddaða og fór tómhentur heim en 5 klst síðar var trukkur kominn á hlaðið og þá varð kátt í höllini... á föstudaginn var ánægjulegur dagur fyrir mig en þá átti ég 1.árs edrú afmæli og vil ég hér með þakka Jesús Kristi kærlega fyrir að taka þessar þungu byrðar  sem ég var með og er ég fullur auðmýktar fyrir það daglega.

Já ég horfði svo á laugardaginn á alla 12 þættina um Næturvaktina og skemmti mér velWizard

Á Sunnudaginn sem var semsagt í gær átti ég afmæli og var opið hús hjá mér hérna á Brúnni og kom aragrúi af leikmönnum til kallsins og gúffaði í snjáldrið á sér þessar líka kræsingar og drykki og horfði á Super Sunday live Match from England en mínir menn sem hafa unnið deildina 18 sinnum og Evrópukeppni Meistaraliða 5 sinnum þurftu að tapa fyrir Manchester enn einu sinni í dramatískum leik... Wizard     það skásta var þó að hið skemmtilega lið Arsenal vann Chelsea og er enn á toppnum ( hefði ekki boðið í það að hafa Man.Utd á toppnum á mínum degi ) ...thank you very much Mr. Gallas Cool

 

Eigum við eitthvað að ræða þetta frekarWizard

 

Sæææææææææææææl

GTG


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna J. Óskarsdóttir

Til hamingju með afmælið í gær og einnig til hamingju með frábæran árangur

Anna J. Óskarsdóttir, 18.12.2007 kl. 18:39

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Til hamingju með bæði afmælin karlinn minn.

Heiða Þórðar, 18.12.2007 kl. 23:34

3 Smámynd: Þ Þorsteinsson

Til allra lukku ,með þennan árangur og megir þú vera laus við þennan fjanda úr þínu lífi. Verst að púllarnir skildu ekki gleðja þig meira þessa helgi ,en vænt þótti mér að heyra að strákarnir mín-ir hafi glatt þig enda hafa þeir guðblessunar frá mér hér á fróni.Það hefur þú einnig frændi.

Er það tilfellið að framsóknarflokkurinn var stofnaður 16 des ári 19??

Þ Þorsteinsson, 19.12.2007 kl. 00:30

4 Smámynd: Gísli Torfi

já takk fyrir góðar kveðjur..já frændi hann var stofnaður þennan dag árið 1916 að ég held :) 

Gísli Torfi, 19.12.2007 kl. 23:07

5 Smámynd: Fiðrildi

Kærar afmæliskveðjur frá mér.  Megi hamingjurík og edrú ár fylgja þér alla framtíð. 

Fiðrildi, 20.12.2007 kl. 17:19

6 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Til lukku með afmælið.
Sendi þér í leiðinni mínar bestu óskir um gleði og frið á jólunum.

Jólakveðja

Linda Lea Bogadóttir, 24.12.2007 kl. 00:31

7 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Gleðileg jólin sömuleiðis - sjáumst við ekki á morgun á hátíðarsamkomu???

Heyrðu ég hélt þú ætlaðir með til Costa Rica eftir ár að hlaupa 250K á 6 dögum, en 16000K á einum mánuði hljómar vel líka

Margrét Elín Arnarsdóttir, 24.12.2007 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband