

þetta eru stelpurnar mínar sem ég er að styrkja til að þær fái að lifa aðeins betra lífi en þær hafa gert .. þær heita Noreen hér til hægri og er frá Pakistan og verður 11 ára 20.Okt og hér til vinstri er hún Angelica frá Filippseyjum sem er 4 ára hún á afmæli 4. janúar. .. var að fá fréttir og mynd af Noreen og hún er að spjara sig vel og gleður það mig mikið og einnig að getað hjálpað aðeins til með að styrkja þær í gegnum ABC barnahjálp .. Hvet alla sem vilja styrkja börn að skoða þetta... Í Pakistan búa um 170 milljónir sem þýðir að það búa fleiri þar en í Rússlandi og yfir 9 milljónir barna á skólaaldri eru ekki í skólum vegna fátæktar .. Ekki sé ég vitund eftir 3.900 krónum á mánuði svo þessar elskur geti haldið lífi í orðsins fyllstu merkingu.
Flokkur: Bloggar | Breytt 6.10.2007 kl. 09:10 | Facebook
«
Síðasta færsla
|
Næsta færsla
»
Athugasemdir
Fallegar stúlkur og ekki síður fallegt hjartalag þitt.
Fiðrildi, 6.10.2007 kl. 13:01
Ji hvað þær eru sætar!
Heiða B. Heiðars, 7.10.2007 kl. 01:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.