Æskan

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ættti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...   OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
 Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé "okkur sjálfum fyrir bestu"?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Við áttum bara gott líf er það ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna J. Óskarsdóttir

  frábær færsla Gísli.... svoooo mikið til í þessu. Maður er bara heppin að vera á lífi. ..heheheh

En ég er reyndar í þeim sporum að vilja vita hvar dóttir mín er öllum stundum...hahahahhah  þetta er bara svo erfitt, að bera ábyrgð á  sínu eigin barni (mjög mikil ábyrgð sko  ), þannig að maður reynir að gera sitt allra allra besta  

Anna J. Óskarsdóttir, 2.6.2008 kl. 20:13

2 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Ég ætti að vera steindauður?

Eysteinn Skarphéðinsson, 4.6.2008 kl. 01:46

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Nákvæmlega!! Verður spennandi að sjá hvernig börnin okkar eiga eftir að spjara sig, krakkarnir sem eru keyrðir hvert fótmál, minntir á alla hluti sem þeir eiga að gera, tekið fram fyrir hendurnar á þeim þegar þau sýna sjálfsbjargarviðleitni - vegna þess að stressuðu foreldrarnir þeirra hafa ekki tíma til að leyfa þeim að spreyta sig. Verður spennandi að sjá kynslóðina taka við landinu, kynslóðin sem núna er pökkuð inn í bómull og fær allt upp í hendurnar, löngu áður en þeim einu sinni dettur í hug að óska sér þess.... því mamma og pabbi eru í gjafakapphlaupi við nágrannann og foreldra hinna í bekknum

Lilja G. Bolladóttir, 4.6.2008 kl. 02:24

4 Smámynd: Þ Þorsteinsson

þetta var svona ,réttillega.

Hvað hefur breist jú við sem fædd eru á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar erum eflaustað gefa okkur meiri tíma í skólagöngu,en foreldrar okkur gerðu.

Ég er á því að vinnan(líkamlegvinna) göfgar manninn.

Minnstakosti góð pæling í því ,að það erum við sem erum að ala upp börn framtíðarinnar og það vorum við foreldrar okkar sem ólu okkur upp í frelsinu.

Auðvita hefur mikið breist í sköpuðu (það erum við sem sköpum það )umhverfi okkar.

Hér áður fyrr var gefið sér tíma til að krefja málinn og hugsa ,í dag höfum við ekki tíma til þess eða gefum okkur ekki tíma.

Eigðu góðan dag Gísli.

bkv Steini

Þ Þorsteinsson, 4.6.2008 kl. 07:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband