Tjöffí
15.9.2008 | 02:38
Aðfaranótt Mánudagsins 15.September
Skrifa úr stólnum góða á meðan Reykjavík og nágrenni og Sparisjóðurinn einnig sefur, nett helgi að baki þar sem vinna,lærdómur og fótboltagláp voru í aðalhlutverki.
Búinn að vera á Næturvaktini síðan á miðvikudagskvöld og verð á þeim þangað til klukkan slær 08:00 þann 18.09.2008. " aukavakt í lokin"
Mál málana þessa helgi var að klára verkefni nr 4. í náminu mínu sem var mátulega erfitt en skemmtilegt að glíma við " kom að góðum notum þar td sjósókn og glímubrögð frá því 1990 í íþróttahúsinu í Reykjardal "
Svefninn á Kallinum var með minnsta móti þessa helgi " svefn er sóunn á lífinu " sagði maður frá Höfn Í Hornafirði árið 1997 ... hvar ætli sá maður sé í dag " kannski loksins sofandi"
Liverpool skóflaði Manchester upp á Anfield í hádeginu á Laugardag og var það á við 8 klst svefn að horfa á dómarann blow-a loka flautið í þeim leik
Sunnudagurinn var gríðarhressandi en ég fór að sofa kl 9 og vaknaði kl 13:38 og byrjaði svo að læra kl 15:00 til kvölds með henni Ástu vinkonu minni og skólafélaga.. en við vorum team í paraverkefni sem við þurftum að skila fyrir miðnætti " gekk það ferli með ágætum"
Þróttur með 3 stig í gær " SNILLD"
klukkan að verða 02:45 am og það er farið að síga í gamla núna " væri til í að vera hjá EMS"
Eigið þið ánægjulega vinnuviku kæru lesendur " grípið daginn hann kemur ekki aftur þessi "
Athugasemdir
Eysteinn Skarphéðinsson, 15.9.2008 kl. 11:40
Eysteinn : Góður... " aðvísu alltaf skemmtilegt að vera í kringum þig líka minn kæri "
Gísli Torfi, 15.9.2008 kl. 17:07
Hulla Dan, 17.9.2008 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.