Don Canon og GriftersHjóla tímabilið í Melodíu&Rythma
13.10.2007 | 08:49
Var að hend inn slatta af lögum .þetta eru svona lög með hinum ýmsu minningum.. sérstaklega fannst mér snilld að finna lagið Funk dat með Sagat.. spilaði það rugl mikið á tímabili og hló eins og salt ruglaður Trakodors eigandi frá Úkraníu.. Weird Al alltaf jafn King kong í hausnum ..gaman að þessu.. svo kemur ódauðlegur Billy Bragg með Eldheitan slagara..og ég veit ekki hvað...
Eigið þið lukkulegan laugardag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svar óskast
13.10.2007 | 01:33
Hef ákveðið að koma með spurningu til þeirra sem lesa þetta blogg og sá sem svarar rétt ..
fær að vera hamingjusamur frjáls og glaður fram að áramótum..
spurt er :
Hvað heitir það að vera Maður af sérstökum Kynflokki meðal frumbyggja Suður Afríku ?
Bónus spurning ...............Hvað kallast viðkomandi ef hann er óður af samræðisfísn ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Par 68
12.10.2007 | 18:50
Sá þessa frétt af Junior og hugsaði ha var á +1 með 69 högg .. sá svo að völlurinn er par 68..(óvenjulegur völlur )
En vona að Heiddi sveifli vel á morgun og endi í topp 10.
Koma svo
![]() |
Heiðar í 33. sæti eftir fyrsta hringinn í Skandeborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glæsilegt
12.10.2007 | 18:44
Ánægður með Sissó... Kappinn búinn að æfa gríðarlega vel á árinu og er að uppskera vel
Bravó fyrir Sissó.
![]() |
Sigurþór tryggði sér keppnisrétt í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jákvætt viðhorf og jákvæð úrslit fyrir Ísl.
12.10.2007 | 17:55
Ég treysti Jolla og Bjarna fyrir þessu öllu og ekkert nema sjálfsagt að æfa nokkur afbrigði af kerfum því það veit það svosem enginn hvað lettarnir koma til með að gera munu þeir pressa framarlega eða liggja aftarlega.... en það er kannski aðalatriðið hvað við gerum og ég persónulega hef nú ekki séð lettana spila en aðsjálfsögðu vill ég sjá strákana koma inn í leikinn af krafti og pressa þá duglega í byrjun .annars er þetta orðinn svo milkill hertækni í dag ..Kannski yrði það best fyrir okkur að þeir pressi okkur framarlega því þá fáum við vonandi meiri svæði til að athafna okkur í sóknini.. við erum með Ragnar og Ívar líklega í hafsentunum og verður gaman að fylgjast með Ragnari drengurinn er að spila eins og sá sem valdið hefur um þessar mundir og greinilega heitasti leikmaður Íslands um þessar mundir ..Svo vona ég að þeir hafi þetta sjálfstraust sem þarf í fótbolta og leiki eins og ein heild..virkar stundum á mig eins og Eiður sé eins og Henry var hjá Arsenal snerist allt um þennann snilling en fóru svo að spila sem heild þegar hann fór til Barca.. Vona bara að Eiður skori hat trick og við vinnum 3-0 ... ( held að við höfum ekki tapað leik í nokkur ár þegar Eiður spilar með )
Koma svo
![]() |
Eyjólfur ekki búinn að ákveða hvort Eiður byrji inná |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hverning tekur maður Gagnrýni eða leiðréttingu
11.10.2007 | 07:21
![]() |
"Hvar er ríku og ókvæntu mennina að finna?" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sviðakjammar Hvað !
11.10.2007 | 00:40
Skemmtileg Orðabók sem ég fann hér á netinu..
Að bera fé: Afklæða kind
Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap
Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur
Fégirnd: Afbrigðileg kynhneygð (Að girnast sauðfé)
Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
Féhirðir: Smali
Félag: Lag sem samið er um sauðfé
Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
Félegur: Eins og sauður
Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
Fjárdráttur: Samræði við kind
Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé
Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé
Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé
Fjármagn: Þegar margar ær koma saman
Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm -Tóndæmi
Fjármálaráðherra: Yfirsmali
Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda
Fjárnám: Skóli fyrir kindur
Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg
Fjársöfnun: Smalamennska
Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin
Fjárvarsla: Það að geyma kindur
Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum
Fjáröflun: Smalamennska
Fundið fé: Kindur sem búið er að smala
Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli
Grímsá: Kind í eigu Gríms
Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér
Hlutafé: Súpukjöt
Langá: Einstaklega löng kind
Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum
Norðurá: Kind að norðan
Opnibert fé: Fé í eigu ríkisins
Sauðburður: Þegar handbært fé er borið að á milli staða
Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags
Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast
Tryggingafé: Öruggt sauðfé
Veltufé: Afvelta kindur
Þjórfé: Drykkfelldar ær
Þverá: Þrjósk kind
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
LummuSlagarar
9.10.2007 | 17:27
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ert þú með áhyggjur
7.10.2007 | 18:03
Besta lækningin við áhyggjum er vitanlega trúartraust. þetta sagði William James sem var prófessor í Heimspeki við Harvard Háskóla.
En það er ekki nauðsynlegt að fara til Harvard til að læra það..Ég ætla að grípa inní sögu prófessorsins hér ... Mamma vildi að ég helgaði líf mitt trúarlegu starfi.Um skeið ætlaði ég að gerast trúboði.Ég menntaði mig og breyttist smá saman með árunum.Ég lagði stund á líffræði,náttúruvísindi,heimspeki og samanburðarguðfræði.Ég las um hverning biblían hefði verið samin. Ég fór að efast um ýmislegt sem í henni stóð. Ég fór að efast um kreddufullar kennisetningar sveitaprestana á þeim árum. Ég var ringlaður. Ég vissi ekki hverju ég ætti að trúa. Mér virtist mannlífið tilgangslaust. Ég hætti að biðjast fyrir. Ég varð trúleysingi. Ég áleit að tilveran væri tilgangslaus. Ég áleit að mannverunar ættu sér ekki æðri tilgang en risaeðlunar sem ráfuðu um jörðina fyrir tvö hundruð milljónum ára. Ég þóttist vita að sú stund kæmi að mannkynið færist- alveg eins og risaeðlunar endur fyrir löngu. Ég þekkti þá kenningu vísindanna að sólin kólnaði smá saman og þegar hiti hennar hefði minnkað um tít prósent væri úti um allt líf á jörðinni. Ég gerði grín að hugmyndinni um algóðan guð sem skapaði manninn í sinni mynd. Ég trúði því að tvær billjónir billjóna hnatta sem reika um dimman,kaldan og lífvana geiminn væru skapaðar af blindum náttúruöflum. Kannski hefði enginn sköpun átt sér stað. Kannski höfðu þeir alltaf verið til - alveg eins og rúm og tími hafa verið til. Er ég að segja að ég hafi svörin við þessu öllu ? NEI- engum manni hefur tekist að opinbera leyndardóm alheimsins-leyndardóm lífsins. Leyndardómar eru allt í kringum okkur. Líkamsstarfsemin er hulin ráðgáta,sömuleiðis rafmagnið í húsinu þínu,blómið í veggsprungunni og grængresið fyrir utan gluggann. Hinn hugvitssami forstöðumaður rannsóknarstöðvar General Motors, Charles F. Ketterings, hefur gefið Antioch-háskólanum árlega þrjátíu þúsund dollara til rannsókna á því hvers vegna gras er grænt. Hann hefur sagt að ef við vissum hverning jurtirnar geta breytt sólarbirtu,vatni og koltvísýringu í fæðu gæti mannlífið tekið miklum stakkaskiptum.Þótt við skiljum ekki leyndardóma líkama okkar eða rafmagnsinsgetum við engu að síður haft gagn og ánægju af þessu öllu. Þótt ég skilji ekki leyndardóma bæna og trúar get ég samt sem áður nú orðið notið þess auðuga og gleðiríka lífi sem af trúnni leiðir. Loksins hefur mér skilst spekin í orðum Santayanna: Manninum er ekki ætlað að skilja lífið heldur lifa því.
Trúinn veitir nýja lífsnautn,fyllra líf,æðra,auðugra og ánægjulegra líf. Hún veitir traust,von og kjark.Hún vinnur á hugarangri,kvíða,ótta og áhyggjum. Hún gefur lífinu tilgang og markmið.Hún gefur hamingju og heilbrigði. Hún hjálpar að skapa friðsæla vini í foksandi lífsins.
Ágætis innlegg hér á Sunnudegi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Túttu-Pam og Rick Porn með Corn Flakes Giftingu
7.10.2007 | 16:37
![]() |
Pamela Anderson gengin í það heilaga á nýjan leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)