Það er ekki eftir neinu að bíða ... en bíðum samt aðeins
9.2.2008 | 06:01
Jæja þá er klukkan orðinn nánast sex um morgun á laugardagsmorgni og ég hér í vinnuni í smá pásu frá Check-out-um .... Það er nú meira hvað hann Kári hefur verið skæður síðustu daga ,ég hef nú blessunarlega ekki verið á þeim stöðum þar sem Kári gekk hvað harðast en ég vona nú að þessi djúpa lægð sé nú horfin með öllu og ekki sé önnur á leiðini.. fróðir menn segja að þetta sé með þeim svakalegsutu lægðum sem komið hafa , las það hér á mbl að einhverstaðar við Vatnajökull aka WaterGlacier hafi vindgraðinn farið í 137 m/s sem eru yfir 400km á klst.. eitt stykki sumarhús fauk bara sí svona útí buskann og kemur aldrei aftur heim til sín, svo voru strætóskýli orðinn leið á að vera á sama stað og sömdu við Kára um að grýta sér eitthvað útí buskann líka og fara í ferðalag með Sumarhúsinu... ( veit samt ekki hvort þau hafi endað á sama stað )
Svo er bara að bíða og sjá hvað gerist í dag
Var nokkuð einhver Beljuræfill að flækjast yfir Esjuni í gær..
þær eiga þetta stundum nefnilega til.
Athugasemdir
Það fauk ekkert hjá mér, hvorki beljur, sumarhús né annað lauslegt.
Fjóla Æ., 9.2.2008 kl. 23:00
Fjóla býrðu ekki í Keflavík ... það er aldrei rok þar
en gott að það sé allt vel sjóbúið þarna suðurfrá
Gísli Torfi, 10.2.2008 kl. 22:18
Innlitskvitt á þig kúturinn minn.
Heiða Þórðar, 11.2.2008 kl. 02:26
Jú Gísli ég bý í Keflavík. Mér finnst ekkert mikið rok hérna, bý reyndar neðarlega í bænum og hef ágæta reynslu af miklu meiri rokrassi eftir að hafa búið á Skagaströnd.
Fjóla Æ., 11.2.2008 kl. 11:56
heyr heyr ,samála Fjólu
Þ Þorsteinsson, 15.2.2008 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.