Ólafur Indriði Stef. magnaður leikmaður.

 

Langaði bara að rifja aðeins upp árangur  hjá þessum  magnaða fyrirliða okkar í Landsliðinu í Handbolta. 

Afrek með félagsliðum

  • Íslandsmeistari 1992-1993, 1993-1994, 1994-1995.
  • Meistari í Þýsku Úrvalsdeildinni 2001-2002.
  • Meistari í Spænsku Úrvalsdeildinni 2003-2004. 2007-2008
  • Bikarmeistari með Ciudad Real 2003-2004, 2004-2005, 2005-2006, 2006-2007.2007-2008
  • Meistari í Meistaradeild Evrópu 2001-2002, 2005-2006. 2007-2008

 Afrek með landsliðum

 Árangur liðs

  • 5. sætið á Heimsmeistaramótinu 1997
  • 11. sætið á Evrópumeistaramótinu 1999
  • 4. sætið á Evrópumeistaramótinu 2002
  • 7. sætið á Heimsmeistaramótinu 2003
  • 9. sætið á Ólympíuleikunum 2004
  • 15. sætið á Heimsmeistaramótinu 2005
  • 2. sætið á Ólympíuleikunum 2008

 

 Einstaklingsafrek Ólafs

  • Á HM 2001 var Ólafur markahæsti leikmaður Íslendinga með 32 mörk.
  • Á EM 2002 var Ólafur markahæsti leikmaður mótsins með 58 mörk.
  • Á HM 2003 var Ólafur markahæsti leikmaður Íslendinga.
  • Á EM 2004 var Ólafur markahæsti leikmaður Íslendinga.
  • Á ÓL 2004 var Ólafur markahæsti leikmaður Íslendinga.
  • Á HM 2005 var Ólafur markahæstur Íslendinga og bar fyrirliðabandið sem hann tók við af Degi Sigurðssyni.
  • Á ÓL 2008 átti Ólafur flestar stoðsendingar mótsins eða 38 alls.

 Verðlaun og viðurkenningar

  • Íþróttamaður Ársins  2002, 2003.
  • Markahæsti leikmaðurinn á Evrópumeistaramótinu 2002.
  • Markahæsti leikmaðurinn í sögu Magdeburg.
  • Markahæsti leikmaðurinn hjá Ciudad Real 2003-2004.
  • Valinn í Úrvalslið Evrópumeistaramótsins 2002.
  • Valinn í Úrvalslið Ólympíuleikanna 2004.
  • Valinn í Úrvalslið Ólympíuleikanna 2008.
  • Markahæsti leikmaður Meistaradeildarinar 2008

Minnir einnig að hann hafi verið kosinn besti leikmaður Þýskalands að minnsta kosti 2 sinnum.

svo vantar örugglega alveg hellings meira

svo á morgun fær hann Stórriddarakrossinn

er búinn að fá Fálkaorðuna fyrir hvað 2 árum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þ Þorsteinsson

Ekki vissi ég að hann ætti svona margar netalíur en vá þvílíkur íþróttarmaður alveg einstakur í sinni röð.

ekki séns að við mössum þetta Gísli :(

Þ Þorsteinsson, 26.8.2008 kl. 16:53

2 Smámynd: Gísli Torfi

Nei enda er þetta Mesti afreksmaður í íþróttasögu okkar Íslendinga.

Gæinn vann Meistaradeildina fyrir Ciudad Real í vor algjörlega uppá sitt einsdæmi  " setti 12 í seinni úrslitaleiknum"  Bara rugl.

Gísli Torfi, 26.8.2008 kl. 18:15

3 identicon

Einlægur aðdándi heyri/les ég, enda Ólafur flottur !

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:04

4 Smámynd: Hulla Dan

Duglegur strákurinn 

Hulla Dan, 27.8.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband