Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Frjáls í 18 mánuði ( lífið í lit )
14.6.2008 | 17:54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tvær Yndislegar konur
13.6.2008 | 11:05
RIP Magga Amma 09.06 & Lína 08.06
Vonir þínar rætist kæri vinur minn
| ||
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lag Lagana
13.6.2008 | 10:58
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
Horfið er nú sumarið og sólin,
Ég gái út um gluggann minn
| ||
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til strákana
13.6.2008 | 10:43
Svona nett innslag til vina mína á TÝR
Þau voru svo eftirsótt Íslandsmið
að enskir þeir vildu oss berjast við.
Og fiskuðu í landhelgi hlið við hlið
en hræddust samt varðbáta smá.
Því þó að herskipin ensk séu sterk og stór
þá varð þeim stuggur af Óðni og líka Þór.
Og hann varð bitur þeim ensku, hinn salti sjór,
er sigldi Albert af krafti á þá.
Hjá togurum enskum var aflinn rýr
og eflaust fiskurinn nokkuð dýr.
Þó að þorskurinn sé ekki skepna skýr
hann skömm hafði Bretunum á.
Og þó að karlarnir verðust með krókstjökum
og voru krýndir af vígbúnum herskipum.
Og hentu í okkur kartöflum ónýtum
innan við tólf mílur gómuðum þá.
Innan við tólf mílur -tólf mílur-, fimmtíu mílur -fimmtíu mílur-,
tvöhundruð mílur -tvö hundruð mílur-... gómuðum þá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvöt - Euro 08 - Rambó
12.6.2008 | 06:25
Það er vaknað snemma hér á Höfðanum í dag og veðrið er svona ekki alveg ´vaknað ennþá ætla að gefa því aðeins meiri séns.
Fór á Ásvelli í gær með Gumma frænda og Hödda Læri að horfa á ÍH - Hvöt í 2.deildini í fótbolta. Ekki riðu mínir menn frá Blönduósi feitum hesti frá þeirri viðureign því ÍH náði að kreista út 3-2 sigur á mínum mönnum sem olli mér vonbrigðum sem og fleirum sem voru þarna uppí brekku þarna voru samankomnir nokkrir góðir kallar eins og Finnbogi Hilmars,Ási Vilhemls,Eysteinn Lárusson,Benedikt Kaster,Bjarki hennar Heiðu,Doddi Ámundar,Kristófer Pálsson.Bjössi Frigga og Siggi X Bankastjóri og Simmi sonur hans. Leikurinn sjálfur var ekki mikið fyrir augað en það sem vantaði helst hjá mínum mönnum var að pressa þá framar þegar þeir voru yfir 2-1 og setja þriðja kvikindið í netið, þeir fengu jú nokkur úrvalsfæri til þess en klikkuðu ávallt. Það sem síðan vantar í mína menn er leikgleði það þarf aðeins að hrista uppí mínum mönnum og fá þá til að njóta þess að spila fótbolta og hafa svolítið gaman af því að vera í þessari deild en það eru 20 ár síðan þeir voru í þessari deild síðast. Ég hef svosem ekki stórar áhyggjur af því að þeim takist ekki að laga þetta og fara að innbyrða sigra hingað og þangað og það voru þarna ágætir leikmenn um borð í UMF.Hvöt og ber helst að nefna Aron miðvörð sem var algjör yfirburðar maður á vellinum í gær. svo er Bosnímaðurinn greinilega fínn spilari og á bara eftir að verða betri Stjáni þjálfari á að vera á kantinum því þar er hann eins og kóngur í ríki sínu takandi menn á og fer létt með það. Lifi Hvöt.... þess má geta að ég tók i spaðann á Rambó fyrir leik sem skaut Bangsa litla um daginn í skagafirði. hann var gríðaröflugur eins og venjulega.
Ég sjálfur er kominn í vikufrí frá Hótelstörfum og var að taka aðeins til í gær í kringum mig og er það bara gríðarhressandi eins og ávallt, lífið er hálf undarlegt þessa viku sem ég er að vinna á næturvöktum, vaka og sofa og jú horfa á EM 08 þessa dagana sem er gríðarjákvætt.
Holland og Spánn mínir menn hafa farið vel af stað og von mín er sú að þeir haldi því bara áfram.
Mitt lið # 1 er Holland eins og venulega og þar sem Spánn er með svo marga úr Liverpool þá er ekki hægt annað en að halda líka með þeim.
Í dag verður bara reynt að njóta dagsins og ætla ég í ræktina í dag og svo fer ég út að borða á Silfrinu í kvöld.
Enjoy the day.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þar hafið þið það
10.6.2008 | 22:11
Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist *"FRUMEFNIÐ KARL*"
Frumefnið finnst: Á sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.
Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar : Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.
Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum.
Ofsafengin viðbrögð við skort á ummönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.
Hristist við notkun.
Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vona að Van Basten lyfti honum aftur
10.6.2008 | 06:48
EM byrjað og mínir menn skelltu Ítölum létt í gær í alveg mögnuðum leik þar sem Hollendingar hefðu getað verið með 3-4 marka forystu í hálfeik og síðan í síðari hálfleik þá hefðu Ítalir alveg getað jafnað en svo stigu mínir menn aftur upp og settu þriðja og síðasta markið og hefðu getað bætt við fleirum.
Spánn í dag og ég verð mættur við skjáinn að horfa á Torres og félaga vinna Rússland létt 3-0 .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Húnavakan
9.6.2008 | 01:40
Föstudagur
17:00- 19:00 Árbakkinn ChristBuffalo mun verða til sýnis
20:30-22:30 Vökulögin í Íþróttahúsinu
Big Band Tónlistarskóla A-Hún undir stjórn Skarphéðins Einarssonar
Lögin 9 leikin
Úrslit kynnt
Kynnir: Felix Bergsson
Forsala fer fram í íþróttahúsinu fimmtudaginn 10. júlí milli 17 og 18. Hægt verður að taka frá borð.
Miðaverð kr. 1.800. Yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgt með fullorðnum.
22:00-02:00 Ljúf tónlist á Pottinum og pönnunni
00:00-03:00 Haldapokarnir á Árbakkanum
Laugardagur
11:00-12:30 Áheyrnarprufur í Míkróhúninum, söngkeppni barna og unglinga. Þær fara fram á útisviðinu á Torginu.
12:00-13:00 Tónleikar í kirkjunni: Samkórinn Björk
13:00-16:00 Fjölskylduskemmtun á Torginu:
Mercedes Club
Gunni og Felix
Abbababb, hljómsveit og leikarar úr þessum skemmtilega söngleik
Míkróhúnninn, söngkeppni barna og unglinga
Hljómsveitin Polyester
Barnaleiktæki
16:00-18:00 Hvöt - Reynir 2 deild karla (Ókeypis aðgangur)
18:00-19:00 Tónleikar í kirkjunni: Hljómsveitin Groundfloor
21:00-23:00 Kvöldvaka í Fagrahvammi
Gunni og Felix
Sigurvegarar úr söngkeppni barna syngja
Bakkasöngur og Íslandsmetstilraun í fjöldakassagítarleik
23:00-03:00 Stórdansleikur í Íþróttahúsinu
Sálin hans Jóns míns
Mercedes Club
Forsala á dansleikinn verður í íþróttahúsinu milli kl. 17 og 18 fyrr um daginn. Miðaverð kr. 2.800.
16 ára aldurstakmark.
Sunnudagur:
13:00-13:15 Skóflustunga að sundlaugargarði á Blönduósi við íþróttahús
13:30-14:30 Tónleikar í kirkjunni: Ardís Ólöf og Hjalti Jónsson
Miðaverð kr. 1.200
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvöt á Þjóðarleikvangi Íslands
6.6.2008 | 09:59
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Snilld
5.6.2008 | 22:00
Er alveg hrikalega ánægður með Þróttara 11 hornspyrnur á móti 2 á útivelli og miklu betri...
Til hamingju Þróttarar...
Glæsilegt .....
Michael Jackson tryggði Þrótti sigur í Árbænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |