Loksins kominn með Hollywood samning
16.11.2007 | 01:09
Þetta er Gísli Torfanovs í South Park kem í næstu þáttaröð sem verður sýnd á NBC stöðini í febrúar 2008
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hugleiðingar á Miðvukudegi
14.11.2007 | 21:02
Jæja nú sit hér í sófanum mínum og hlusta á Björgvin og sinfó í græjunum og það er alveg magnað hvað textarnir í lögunum stuða mann stundum mér finnst Bó og sinfó yndilegur diskur og ekki leiðinlegt að það er DVD líka í hulstrinu en nóg um það nú ætla ég að tala um draumadísina mína sem er ófundin og leynist einhverstaðar á jarðkringluni nema að örlög mín séu að verða 49 ára pipar karlmaður sem safni þjóðbúningardúkkum og horfi á allt í drasli í frístundum.. Ég reyni eftir fremsta megni að elska alla eins og þeir eru og koma fram við alla á sama hátt, ég vil helst ekki koma fram við aðra eins og aðrir koma fram við mig.( ef ske kynni að aðrir komi leiðinlega fram við mig ) reiði,öfund,sársauki,hatur og öll þessi flóra af mannlegum breyskleika sem er of mikið af í veröldini hryggir mig og ég er hvern dag að gera mitt besta til að lifa daginn í dag án þess að finna fyrir þeim breyskleikum sem vissulega býr innra með mér og öllum en ég hef áður sagt það hér að ég á val á hverjum degi og ég iðrast daglega en að iðrast fyrir mér er að leitast eftir að gera það sem er rétt hverju sinni og láta af því sem er rangt, mér tekst það oft en á það líka til að mistakast enda er ég ekki fullkominn, en bíddu við var ég ekki að fara að tala um draumadísina humm..það er spurning að ég láti draumadísina bíða þangað til að næst..
En hér eru 2 konur sem eru svona full stórar og svakalegar fyrir mig sem ég ætla að leyfa ykkur að skoða.... eflaust eru þetta hjartahlýjar manneskjur en kannski ekki mjög mömmulegar.. eða hvað !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Er að spá í að fá mér Gæludýr
6.11.2007 | 13:11
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Til hamingju Una mín
6.11.2007 | 07:36
Jæja Nú á hún elskulega systir mín afmæli í dag og er þessa stundina með familyjuni í Florida í fríi ..til lukku með daginn Una Marsibil mín.. Ég er farinn að sofa frekar snemma þessa dagana kominn í rúmið fyrir klukkan 22:00 og vakna eins og James heitinn Brown núna alveg sjoðandi hress og káttur fyrir allar aldir og því ber að fagna með flugeldum og Karlakór .. ekkert jafnast á við að bjóða daginn velkominn í kyrrð og rólegheitum held líka að maður lifi örlítið lengur á ellistyrknum þegar að því kemur ekkert neitt óþarfa stress og allt að gerast í einum kviss bang búmm eins og maður á stundum kyn til ... Fór á rölt niður á sloppnum með nýlagað kaffið að ná í moggann minn en hann var ekki kominn er þetta ekki MORGUNblað jæja það er rigning úti og blaðberinn hlýtur bara að vera að kúrandi undir sæng ..
Mér finnst alltaf vinur minn hann Jesú alltaf svo nákvæmur en ég var að horfa út um gluggann og var að þakka vini mínum fyrir þennann yndislega rigninga dag og ákvað þá að draga í orði Guðs sem er svona smá kassi með spjöldum með orði Guðs í og ég dreg á hverjum degi og í dag dróg ég.
Þakkið Drottni, því að hann er góður.því að miskunn hans varir að eiílfu. sálm.107:1
Er Guð ekki góður ..hann er bestur.
eigið þið eins góðann dag og þið einsetjið ykkur að eiga..
G
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
50 dagar til Jóla
4.11.2007 | 10:58
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
THE SHIRT MAN
3.11.2007 | 13:24
Jahá var að skoða í skápinn hjá mér og fór að telja hvað ég á mikið af skyrtum og það voru um 47 á slánni þannig að með því sem er í kassa og einnig heima hjá gamla settinu þá myndi ég reikna að þær væru um 70 stk ..spurning að fara að gefa nokkrar til þurfandi einstaklinga.. einnig á ég um 10 jakkaföt og ég veit ekki hvað af skóm ætli þeir séu ekki um 20 stk .. já ég hendi nánast aldrei neinu..finnst gott að hafa þetta í kassa í staðinn aldrei að vita nema maður fái löngun í að klæðast þeim aftur eða þessum blessuðu skyrtum.... félagi minn fékk lánaðann þvottastandinn minn um daginn og ég sem var að þvo í morgun setti því upp þvottasnúru á milli ljósa í loftinu hjá mér og hengdi upp þvottinn já maður maður deyr nú ekki úr ráðaleysi þessa dagana.. fínasta snúra hér hjá mér og svo kemur klassa rakalykt í höllina mína... myndi nú samt seint kalla þetta einhverja keppnishöll en hún er akkurat sniðinn fyrir svona mann eins og mig sem er uppá á 173cm og 175cm í Nikeskóm... Já það er Laugardagurinn 3.Nóvember og því ber að fagna því að vinur minn á afmæli í dag og ég segi bara til lukku með daginn Keli ... annars er það að frétta úr heimi veraldarlega hlutana að Paris Hilton vilja láta frysta sig ... þvílík frétt ég bara var svo jákvæður eftir þessa frétt að ég ákvað að setja í aðra þvottavél og hlusta á Hallbjörn Hjartarson nánar tiltekið Kántrý 5 og skelli hlæja af öllu þessum fréttum sem koma manni til að fíla Hallbjörn og Geirmund Valtýrsson aka Geira Valtara.. er aðvísu búinn að fara á sirka 400 böll með þessum sveiflulokk í gegnum árinn ... Ort í sandinn er td það hrikalegsta lag sem ég hef þurft að hlusta á ... en góða helgi og eru ekki allir sexý ó jeje je
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Smá molar fyrir Nóvember
1.11.2007 | 17:45
Sumir segja "Ég er bara svona" og yppa öxlum, en staðreyndin er sú að það er ekkert sem við getum ekki breytt við eigin hegðun. Í raun má breyta hreinlega öllu og það getum við gert svo lengi sem viljinn er fyrir hendi. Ef þér finnst sem svo að aðrir beri ekki nægilega virðingu fyrir þér þá gæti hjálpað að fylgja eftirfarandi atriðum:
1. Vertu alltaf hrein/n og snyrtileg/ur til fara. Fötin þurfa ekki endilega að vera dýr, en heil, pressuð og vel þrifin þurfa þau að vera. Gættu heilsu þinnar og sjáðu til þess að tennurnar séu alltaf hvítar og hreinar. Breitt bros gefur líka til kynna að þú njótir þess að vera í eigin félagsskap sem annarra.
2. Talaðu vandað mál. Ekki hika við að koma með jákvæðar athugasemdir um annað fólk, en gættu þess að vera einlæg/ur því það sjá allir í gegnum það ef þú ert það ekki.
3. Heilsaðu fólki vingjarnlega. Fólk kann vel að meta það og kveðjan verður endurgoldin.
4. Aldrei nýta þér veikleika annarra. Fólk ber ekki virðingu fyrir þeim sem bera ekki virðingu fyrir öðrum. Leyfðu fólki að halda virðingu sinni.
5. Ekki hegða þér eins og þú vitir allt. Fæstir kunna við yfirlæti.
6. Ekki eltast við tískubólur vegna þess að aðrir gera það. Veldu fyrir sjálfa/n þig og aðrir munu bera virðingu fyrir þér fyrir vikið.
7. Að bregðast rólega við þeim sem sýna þér vanvirðingu er alltaf góður leikur. Reyndu að skilja hvers vegna manneskjan er æst og reið eða í vörn. Að koma fram við aðra eins og þú vildir að aðrir kæmu fram við þig er góð leið til að þið náið niðurstöðu í málinu.
8. Mundu alltaf að við erum öll breysk, gölluð og með okkar vankanta. Það forðar þér frá því að líta niður á aðra.
9. Hafðu fókusinn alltaf fremur á fólki en hlutum. Hlutir geta horfið eyðilagst. Fólk er svo miklu mikilvægara og okkar sönnu verðmæti liggja ekki í því sem við eigum heldur í þeirri manneskju sem við erum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4klst í Nóv.
31.10.2007 | 19:35
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bingó Bjössi
26.10.2007 | 07:39
Það fyrsta sem ég sagði þegar ég vaknaði í dag var "Bingó Bjössi" þvílíkt og annað eins hvað er í gangi í hausnum á mér nú á föstudegi.. man nú reyndar eitthvað eftir þessum þáttum þegar ég fer að rifja upp afhverju í þessum hafsjó af furðuleg heitum í hausnum á mér Bingó Bjössi poppaði upp..man td. að nafnið var komið frá Blönduósi en það var einhver skepna sem vann í nafnakeppni á þáttinn sem Yngvi Hrafn stýrði :) en nóg af Bingó Bjössa ..
í dag ætla ég að vera Hress eins og Eldfjall og ekki annað hægt eftir að hafa fengið sér Gevalia kaffið mitt og fengið mér hressa hleðslu af vítamínum og þeirri vitneskju frá mbl að Britney Spears er kominn með Tímamóta-CD sem er sagður sá besti frá Upphafi Byggða. Ekki annað hægt en að vera kátur með það og láta limina dansa eftir furðulegu-jákvæðu-mjög svo Húmorískum huga mínum ... legg til að allir byrji daginn á því að hlusta á Friday með Sir Charles Jones og girði sig í brók og taki smá nettar sorry hreyfingar on the side á stofugólfinu...
Í dag er ég að fara í Rútuferð í Fljótshlíð með vinum mínum frá ALFA námskeiðinu mínu og verð þar alla helgina í dúndur feeling...
svo ætla ég að gefa ykkur orð sem ég dróg í dag.
Jesús sagði: "Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöra yður,það skulið þér og þeim gjöra." Matt.7:12
Góða helgi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Lagalisti frá Lasarus
23.10.2007 | 17:01
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)