17.júní með vinum

17.juni17.juni 2Mynd019

Vantaði bara buxurnar. " steinliggur"

Copy of Dressið

styttist í 17.júní

Þá er upprisinn Sunnudagur og ég vaknaður rétt um morgunmjaltir,dagurinn í gær var alveg gríðarlega hress og var tekinn snemma en ég Gísli Torfi fór ásamt vinkonu minni í fjórhjólaferð sem ég fékk uppí hendurnar í vinnuni minni, við vorum mætt um hálf níu við litlu kaffistofuna og beygðum þá til hægri og keyrðum svo í 1 mín eða þangað til að við vorum kominn í jósefsdal og var veðrið alveg að leika við okkur sól og hiti og það gat ekki verið betra við okkur, svo var farið og sett á sig græjur og þar sem við vorum svo fá sem vorum í þessum túr þá fengu við auka hálftíma á hjólunum og sem var alveg frábært en við vorum í 90 min á hjólunum að keyra út um allt.

Í hádeginu fór ég á fund og veifaði hendi til merkis um að ég væri 18 mánaða edrú í Wizard eftir hann fór ég ásamt góðum vinum í kringluna í 2 tíma, svo var komið heim og horft á EM og liðið mitt #2 Spánn vann Svergie 2-1 og var ég kátur með það.. En þurfum við eitthvað að ræða mitt lið á mótinu Holland nei ég hélt ekki orðlaus yfir þeim í dag algjör helber snilld

Um kvöldið fór ég með félaga mínum í Kærleikann í Keflavík og var það bara yndislegt og ætlaði ég svo að fara í smá partý í í Kærleikanum í Reykjavík en ég sofanði snemma í gær eða um 23:00 og vaknaði núna um 06:15 sæmilega hress eftir frábæran dag í gær og tala nú ekki um föstudag þar sem ég fór í 101 með Krissa vini mínum og vorum við þar að spóka okkur í sólini frá hádegi til að verða 7 um kvöldið og var maður orðinn alveg soðinn . Wizard

Á fimmtudagskvöldið fór ég á Silfrið að borða með góðu fólki og var kallinn að frá 19:30 til 23:30 og var að nægju að taka þar í réttunum.

Styttist svo í 26.júní er ég fer  til Lúxemburg með mömmu og Pabba að hitta Heiðar Davíð,Guðríði og ðrinsinn Veigar í vikutíma.

4hjól

 

Eigið þið góðann dag.


Frjáls í 18 mánuði ( lífið í lit )

   Copy of Mynd014a.p taMyndrauð   Heiða BÞ langaði að setja þessar myndir inn fyrir þig svo þú gæti nú séð kallinn svona fínann Wizard

Tvær Yndislegar konur

RIP  Magga Amma 09.06 & Lína 08.06

 

 


Marga góða sögu amma sagði mér,
Sögu' um það sem hún og aðrir lifðu hér
Alltaf var hún amma mín svo ósköp væn


og í bréfi sendi þessa bæn:

Vonir þínar rætist kæri vinur minn
vertu alltaf sanni góði drengurinn.
Þó í lífisins straumi bjáti eitthvað á,
ákveðinn og sterkur sértu þá.


Allar góðar vættir lýsi veginn þinn,
verndi' og blessi elskulega drenginn minn.
Gefi lán og yndi hvert ógengið spor,
gæfusömum vini hug og þor.

 
 

Lag Lagana

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður

                         
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.

             
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður

         
verða betri en ég er.

 


Eitt sinn verða allir menn að deyja.

       
Eftir bjartan daginn kemur nótt.

                 
Ég harma það, en samt verð ég að segja,

             
að sumarið líður allt of fljótt.

 


Við gætum sungið, gengið um,


gleymt okkur með blómunum.

                 
Er rökkvar ráðið stjörnumál.


Gengið saman hönd í hönd,


hæglát farið niður á strönd.


Fundið stað, sameinað beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin,         

                 
í sálu minni hefur gríma völd.           

            
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;

                
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

 


Eitt sinn verða allir menn.............

Ég gái út um gluggann minn

        
hvort gangir þú um hliðið inn.

               
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.


Ég rýni út um rifurnar.


Ég reyndar sé þig alls staðar.

     
Þá napurt er, það næðir hér

    
og nístir mig.

 
 

Til strákana

 

Svona nett innslag til vina mína á TÝR 


Þau voru svo eftirsótt Íslandsmið

að enskir þeir vildu oss berjast við.

Og fiskuðu í landhelgi hlið við hlið

en hræddust samt varðbáta smá.


                  
Því þó að herskipin ensk séu sterk og stór
                     
þá varð þeim stuggur af Óðni og líka Þór.
                       
Og hann varð bitur þeim ensku, hinn salti sjór,
            
er sigldi Albert af krafti á þá.



Hjá togurum enskum var aflinn rýr
  
og eflaust fiskurinn nokkuð dýr.
                              
Þó að þorskurinn sé ekki skepna skýr
         
hann skömm hafði Bretunum á.


               
Og þó að karlarnir verðust með krókstjökum
            
og voru krýndir af vígbúnum herskipum.
               
Og hentu í okkur kartöflum ónýtum
               
innan við tólf mílur gómuðum þá.
               
Innan við tólf mílur -tólf mílur-, fimmtíu mílur -fimmtíu mílur-, 
                                                                                  
tvöhundruð mílur -tvö hundruð mílur-... gómuðum þá.

 


Hvöt - Euro 08 - Rambó

Það er vaknað snemma hér á Höfðanum í dag og veðrið er svona ekki alveg ´vaknað ennþá ætla að gefa því aðeins meiri séns.

Fór á Ásvelli í gær með Gumma frænda og Hödda Læri að horfa á ÍH - Hvöt í 2.deildini í fótbolta. Ekki riðu mínir menn frá Blönduósi feitum hesti frá þeirri viðureign því ÍH náði að kreista út 3-2 sigur á mínum mönnum sem olli mér vonbrigðum  sem og fleirum sem voru þarna uppí brekku þarna voru samankomnir nokkrir góðir kallar eins og Finnbogi Hilmars,Ási Vilhemls,Eysteinn Lárusson,Benedikt Kaster,Bjarki hennar Heiðu,Doddi Ámundar,Kristófer Pálsson.Bjössi Frigga og Siggi X Bankastjóri og Simmi sonur hans.  Leikurinn sjálfur var ekki mikið fyrir augað en það sem vantaði helst hjá mínum mönnum var að pressa þá framar þegar þeir voru yfir 2-1 og setja þriðja kvikindið í netið, þeir fengu jú nokkur úrvalsfæri til þess en klikkuðu ávallt. Það sem síðan vantar í mína menn er leikgleði það þarf aðeins að hrista uppí mínum mönnum og fá þá til að njóta þess að spila fótbolta og hafa svolítið gaman af því að vera í þessari deild en það eru 20 ár síðan þeir voru í þessari deild síðast.  Ég hef svosem ekki stórar áhyggjur af því að þeim takist ekki að laga þetta og fara að innbyrða sigra hingað og þangað og það voru þarna ágætir leikmenn um borð í UMF.Hvöt og ber helst að nefna Aron miðvörð sem var algjör yfirburðar maður á vellinum í gær. svo er Bosnímaðurinn greinilega fínn spilari og á bara eftir að verða betri Stjáni þjálfari á að vera á kantinum því þar er hann eins og kóngur í ríki sínu takandi menn á og fer létt með það.  Lifi Hvöt.... þess má geta að ég tók i spaðann á Rambó fyrir leik sem skaut Bangsa litla um daginn í skagafirði.  hann var gríðaröflugur eins og venjulega.

 Ég sjálfur er kominn í vikufrí frá Hótelstörfum og var að taka aðeins til í gær í kringum mig og er það bara gríðarhressandi eins og ávallt, lífið er hálf undarlegt þessa viku sem ég er að vinna á næturvöktum, vaka og sofa og jú horfa á EM 08 þessa dagana sem er gríðarjákvætt.

Holland og Spánn mínir menn hafa farið vel af stað og von mín er sú að þeir haldi því bara áfram.

Mitt lið # 1 er Holland eins og venulega og þar sem Spánn er með svo marga úr Liverpool þá er ekki hægt annað en að halda líka með þeim.

Í dag verður bara reynt að njóta dagsins og ætla ég í ræktina í dag og svo fer ég út að borða á Silfrinu í kvöld. hvöt

 Enjoy the day.


Þar hafið þið það

*TILKYNNING *


Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist *"FRUMEFNIÐ KARL*"


Frumefnið finnst: Á sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.


Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.


Eðliseiginleikar : Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.


Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum.

Ofsafengin viðbrögð við skort á ummönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.


Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.


Hristist við notkun.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.Wizard

Vona að Van Basten lyfti honum aftur

EM byrjað og mínir menn skelltu Ítölum létt í gær í alveg mögnuðum leik þar sem Hollendingar hefðu getað verið með 3-4 marka forystu í hálfeik og síðan í síðari hálfleik þá hefðu Ítalir alveg getað jafnað en svo stigu mínir menn aftur upp og settu þriðja og síðasta markið og hefðu getað bætt við fleirum.

 Spánn í dag og ég verð mættur við skjáinn að horfa á Torres og félaga vinna Rússland létt 3-0 .Wizard

 

55431981_5_xfac


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband