Húnavakan

Föstudagur 

17:00- 19:00        Árbakkinn     ChristBuffalo mun verða til sýnis  

20:30-22:30         Vökulögin í Íþróttahúsinu

                                                Big Band Tónlistarskóla A-Hún undir stjórn Skarphéðins Einarssonar

                                                Lögin 9 leikin

Úrslit kynnt

                                Kynnir: Felix Bergsson

                                Forsala fer fram í íþróttahúsinu fimmtudaginn 10. júlí milli 17 og 18. Hægt verður að taka frá borð.

                                Miðaverð kr. 1.800. Yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgt með fullorðnum.

 

22:00-02:00          Ljúf tónlist á Pottinum og pönnunni

 

00:00-03:00          Haldapokarnir á Árbakkanum

                       

Laugardagur

 

11:00-12:30         Áheyrnarprufur í Míkróhúninum, söngkeppni barna og unglinga. Þær fara fram á útisviðinu á Torginu.

 

12:00-13:00         Tónleikar í kirkjunni: Samkórinn Björk

 

13:00-16:00         Fjölskylduskemmtun á Torginu:

                                                Mercedes Club

                                                Gunni og Felix

                                                Abbababb, hljómsveit og leikarar úr þessum skemmtilega söngleik

                                                Míkróhúnninn, söngkeppni barna og unglinga

                                                Hljómsveitin Polyester

                                                Barnaleiktæki

 

16:00-18:00         Hvöt - Reynir 2 deild karla (Ókeypis aðgangur)

 

18:00-19:00         Tónleikar í kirkjunni: Hljómsveitin Groundfloor

 

21:00-23:00         Kvöldvaka í Fagrahvammi

                                                Gunni og Felix

                                                Sigurvegarar úr söngkeppni barna syngja

                                                Bakkasöngur og Íslandsmetstilraun í fjöldakassagítarleik

 

23:00-03:00         Stórdansleikur í Íþróttahúsinu

                                                Sálin hans Jóns míns

                                                Mercedes Club

                               Forsala á dansleikinn verður í íþróttahúsinu milli kl. 17 og 18 fyrr um daginn. Miðaverð kr. 2.800.

                               16 ára aldurstakmark.

 

Sunnudagur:

 

13:00-13:15         Skóflustunga að sundlaugargarði á Blönduósi við íþróttahús

 

13:30-14:30         Tónleikar í kirkjunni: Ardís Ólöf og Hjalti Jónsson

                               Miðaverð kr. 1.200


Hvöt á Þjóðarleikvangi Íslands

            20070921104008328  Áfram HVÖT                     fram-veggfodur-small

Snilld

Er alveg hrikalega ánægður með Þróttara 11 hornspyrnur á móti 2 á útivelli og miklu betri...

 

Til hamingju Þróttarar...

 

Glæsilegt .....  


mbl.is Michael Jackson tryggði Þrótti sigur í Árbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalegt atriði

Veit einhver um góða Búningaleigu...

 

 

 


Æskan

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ættti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...   OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
 Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé "okkur sjálfum fyrir bestu"?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Við áttum bara gott líf er það ekki?


3-2

 

 Þrótturkeflavík

Nú á að fara á leik á Valbjarnarvelli kl 19:15 í kvöld og sjá Þróttara taka á móti Toppliði Keflavíkur.

þar sem að ég hef aldrei séð Þróttara tapa á Heimavelli vona ég að þeir haldi því bara áfram.

það verður bara gaman að horfa á þennan leik, mínir menn í þrótti á móti því liði sem mér finnst spila skemmtilegasta boltann.

 

Sjálfur mun ég taka smá hreyfingu á þetta í dag og fara út að skokka og svo í smá fótbolta.

 

Lifi Þróttur

 


Smá fimmaura Húmor í daginn


-Ef að snjókorn væru kossar þá mundi ég senda þér felli bil!

-Ég veit að mjólk er góð fyrir húðina!En hvað drakkstu MIKIÐ?

- Trúir þú á ást við fyrstu sýn eða ætti ég að ganga fram hjá þér nokkrum sinnum?


- Ég er auðveld bráð, hvað með þig?

- Sérðu vin minn þarna [bendir á vin þinn], hann bað MIG um að spurja ÞIG hvort að ÞÉR fyndist ÉG sætur...

- [Þegar hún er að fara] Hey ... ertu ekki að gleyma einhverju? Hún: Hverju? Þú: Mér!


- Ég hlýt að vera villtur, ég hélt að paradís væri lengra í suður!


- Hæ, ég er nýr í bænum, geturðu nokkuð gefið mér leiðbeiningar um hvernig ég kemst heim til þín?


- Fyrirgefðu, varstu að tala við mig? Hún: Nei... Þú: Ok .. þú mátt þá byrja á því núna.


- Hvenær þarftu að vera komin aftur til himna?

- [Kíktu á miðann aftan á skyrtunni hennar. Þegar hún spyr: "Hvað ertu að gera?", segir þú: "Jáá ... eins og mig grunaði... "MADE IN HEAVEN".


- Fyrirgefðu ... hvað er klukkan? Hún: hálf 12, Þú: Ahaa ... 21. júlí 1999 ... klukkan hálf 12 ... Ég vil bara leggja stundina á minnið þegar ég hitti fallegustu konu í heimi.

- Þú ert svo sæt, að Nói Síríus fer fljótlega á hausinn ...

- En hérna ... vinnirðu eitthvað? Fyrir utan að láta menn falla í yfirlið...


- Hefurðu verið í fangelsi? Því það hlýtur að vera ólöglegt að vera svona falleg.


- Ég verð að fá að vita það ... hvernig er að vera fallegasta manneskjan í herberginu?


- Þú lítur út eins og þriðja konan mín. Hún: "Váá ... hversu oft hefur þú eiginlega verið giftur?" Þú: Tvisvar ...


- Til hamingju! Þú hefur verið kosin "Fallegasta konan á staðnum" og verðlaunin eru nótt með mér.

- Hjálpaðu heimilslausum ... taktu mig með þér heim!

- Hérna er tíkall, hringdu heim til þín og segðu að þú komir ekki heim í nótt.


- Þú verður að hjálpa mér! Mamma segir að ef ég nái mér ekki í kvenmann fyrir morgundaginn ætli hún að gefa mig.


- Ég skal elda kvöldmat handa þér ef þú býrð til morgunmat handa mér!


- Þessi kjóll myndi líta æðislega út ... í hrúgu við hliðina á rúminu mínu.


- Það eru 265 bein í líkamanum ... hvernig líst þér á að fá eitt í viðbót?

- Hvort er erfiðara, þú að komast í þessar þröngu buxur ... eða ég að koma þér úr þeim?

- Hvernig kemst ég í aðdáendaklúbbinn þinn?


- Hæ! Mamma þín komst ekki og bað mig um að fylgja þér heim.


- Ef þú flettir upp í alfræðiorðabók að "hættuleg villidýr", þá myndirðu sjá mynd af félaganum á mér ...

- Dagsetningin á smokkunum mínum er að renna út, geturðu hjálpað mér?


- [Taktu með þér ísmola og brjóttu hann fyrir framan hana]. Þar sem ég er búinn að brjóta ísinn .. viltu sofa hjá mér?


- Hvað segirðu um að förum heim til mín í smá stærðfræði: drögum af okkur fötin, deilum rúmi og margföldum okkur!



 


07:07:07 again

Magnað klukkan er núna að verða 7 og langt liðið á morgunmjaltir hjá Birni Bónda og hér sit ég í vinnuni og angra mig í smá tíma við að þurfa að vinna líka í kvöld .. jæja einn vakt í viðbót gerir mig ekki alveg gráhærðan ( spurning hvort ég fái grá hár á fimmtudag ætla að kíkja á mig þá )Shocking

Eins og ég segi þá fer að líða að fríi og er það vel, ætla að skreppa í Blómabæinn á föstudaginn með Veiðihallarkónginum honum Gumma frænda og sjá vonandi okkar menn í Hvöt fara með 3 stig norður eftir leikinn við Hamrana.Police

Senn líður svo að því að Hátíð hafsins verði sett með prompi og prakt og aldrei að vita hvort mínir menn á Tý verði í landi þá væri nú ekki vitlaust að kíkja í kaffi og kleinur...Wizard

sirka mánuður þangað til að ég fari líklega út í lönd með gamla settinu að heimsækja minn yndislega bróðir og fjölskyldu hans.Heart

Í dag verður vonandi besti dagur ársins fyrir þig.Wizard

kv G 


07:07:07 am

Jæja þá eru liðnir 6 dagar síðan eitt stk endajaxl var rifinn úr kallinum...  og er maður svona að braggast þótt seint gangi að vera fullfær í flestan sjó...  kominn langt með næturvaktargönguna í þessari törn og er það vel.     Eurovision búið og 64 stig sem er ágætt ég hélt nú að við myndum kannski verða í topp 8 en nei það varð nú ekki reyndin þannig að nr 14 var Ísland og það má segja það að við enduðum best allra þarna í Belgrad með því að fá 12 stig frá Danmörku Wizard

 

Kallinn byrjar svo í fjarnámi við Háskólan á Bifröst 15 Ágúst 2008 ..það er orðið klárt.

Eigið góðann dag.

 

kv G 


ekki er nú öll vitleysan eins

Icelandic jokes

Rakst á þetta hjá Stormsker.  

 

 

 

Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.
Léttara er að sóla sig en skó.


Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
Ekki er aðfangadagur án jóla
Blankur er snauður maður.
Lengi lifa gamlar hræður.
Sá hlær oft sem víða hlær.
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
Rangt er alltaf rangt, það er rétt.
Betra er að ver á milli svefns og vöku en stafs og hurðar,og
skers og báru og steins og sleggju.
Margur hefur farið flatt á hálum ís
Sjaldan er góður matur of oft tugginn.
Sjaldan er góður maður of oft tugginn.
Heima er best í hófi.
Betri eru læti en ranglæti
Oft er virtur maður ekki virtur viðlits.
Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er
Betra er að standa á eigin fótum en annarra.
Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst.
ft er grafinn maður dáinn.
Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
Oft er bankalán ólán í láni.
Oft eru læknar með lífið í lúkunum.
Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur.
Enginn verður óbarinn boxari.
Oft er dvergurinn í lægð.
Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar.
Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni.
Illu er best ólokið.
Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt.
Ekki dugar að drepast.
Eitt sinn skal hver fæðast.
Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni.
Blindur er sjónlaus maður.
Bændur eru bændum verstir og neytendum líka.
Flasa er skalla næst.
Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.
Margur geispar golunni í blankalogni.
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.
Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn
Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu.
Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur.
Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
Betra er að hlaupa í spik en kekki.
Nakinn er klæðalaus maður.
Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga.
Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa.
Minkar eru bestu skinn.
Margur nautabaninn sleppur fyrir horn.
Betra er að drepa tímann en sjálfan sig.
Betra er að ná áfanga en að ná fanga.
Hungraður maður gerir sér mat úr öllu.
Betra er að vera eltur en úreltur.
Oft kemst magur maður í feitt.
Ekki var Lennon skotinn í Yoko heldur í New York.
Oft eru lík fremur líkleg.
Betra er áfengi en áfangi.
Ei var hátíð fátíð í þátíð.
Margur boxarinn á undir högg að sækja.
Betri eru kynórar en tenórar.
Betra er að sofa hjá en sitja hjá.
Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir.
Til þess eru vítin að skora úr þeim.
Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn.
Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
Oft eru dáin hjón lík.
Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
Betra er að fara á kostum en taugum.
Greidd skuld, glatað fé.
Margur bílstjórinn ofkeyrir sig.
Oft hrekkur bruggarinn í kút.
Ef þú átt vín þá áttu vin.
Margur bridsspilarinn lætur slag standa.
Oft er lag engu lagi líkt.
Oft svarar bakarinn snúðugt.
Oft er holdsveikum laus höndin.

Saumakona fæst ekki til að stoppa, þegar hún er byrjuð að halda tölu,og
prjóna við sögu, og spinna lygavef og tvinna allt saman og spotta menn
og fara ofaní saumana á hlutunum sem eru nýir af nálinni og sauma að
fólki sem er á nálum og er að reyna að bæta ráð sitt og bíta úr nálinni,
... æ æ þar missti ég þráðinn.

Betri er utanför en útför.
Margur fær sig fullsaddan af hungri.
Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur.
Oft eru bílstjórar vel á veg komnir.
Oft fara bændur út um þúfur.
Víða er þvottur brotinn.
Oft fer presturinn út í aðra sálma.
Betra er að teyga sopann en teygja lopann
Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér.
Verra er að gleypa koddaver, Húnaver, sænguver, orkuver,
Magnús Ver en Sjeniver, því er ver.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband