Skemmtilegar auglýsingar

Hér eru nokkrar skemmtilegar auglýsingar í gegnum tíðina... svo heyrði ég eina í útvarpinu í dag sem ég grenjaði úr hlátri af....

Að hringja í Belju það er Vodafone.

Að hringja beint í Bjarnastaði og borga ekki neitt fyrir það..

Það er HIVE 

 

 

1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill: Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..

12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahaha...

Börn á 300 kall.... okur! :)

Heiða B. Heiðars, 23.10.2007 kl. 13:56

2 Smámynd: b.p

alveg sammála nr. 6 Rúm er íþróttaaðstaða ...

b.p, 23.10.2007 kl. 16:10

3 Smámynd: Anna J. Óskarsdóttir

hahahahha   þetta er snilld, hverju öðru fyndnara..t.d.  1, 6 og 9..

Anna J. Óskarsdóttir, 23.10.2007 kl. 18:01

4 Smámynd: Arnfinnur Bragason

...já og kýrin sem hvorki reykir né drekkur

Arnfinnur Bragason, 25.10.2007 kl. 13:32

5 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

já og hvað ætli margir ólæsir hafi svarað bréfinu

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 26.10.2007 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband