Búkolla tekin í notkun í 312

Jæja þá eru Páskarnir búnir og Bunny fjölskyldan farinn og kemur ekki aftur í bráð.

Sjálfur átti ég ágætis daga sem samanstóð af AA fundum,Kirkjusókn,Fótboltaglápi,smá ferðarlagi á Suðurnesin og í matarveislu til Unu systir og Steina á laugardeginum og uppí Hlaðgerðarkot á Páskadag í eðalmaltíð í hádeginu.

Það er nú alveg magnað hvað það getur verið gaman að lesa yfir bloggheiminn hér og sjá hvað menn eru að gera eða hvað þeim dettur í hug að skrifa. 

Á laugardeginum um páska kom þvottavél í heimsókn til mín og  bauðst til að þvo fyrir mig , eftir að hafa drösslað henni upp allar tröppurnar með Pabba ( hún var ekki létt ) og sett hana á stað á tójl-aranum átti bara eftir að Plug-a hana í samband við vatnsstútin og frárennslið en þá áttu við ekki 50mm gúmmíþéttingu né þetta plastdrasl ..þannig að ég þurfti að bíða fram á annann dag páska til að redda því , keypti aðvísu fyrst eh dót fyrir Uppþvottavél og vask sem ég hafi ekki mikið not fyrir en strák pjakkurinn í BYKO sagði að ég þyrfti þetta á þvottavélina mína ( ég var svona frekar hissa ) en já ég semsagt keypti það drasl sem leit út eins og stökkbrygði af rennibraut frá Costa Sel Sol. 

Þá kom til skjalana Hr.Keli dúklagningamaður og allt mögulegt man og sagði mér að koma sem snöggvast í Jeppann sinn og við skildum halda í BYKO og fá þessu skipt fyrir akkúrat því sem ég var búinn að ná í áður en fyrr greindur strák pjakkur sem notaben átti að vera einhver  "Specialist í Pípulögnum"  kom til skjalana og náði að selja mér eh dót sem ég hafði ekki not fyrir og kostaði mig eða réttara sagt kela auka ferð með mig frá Höfðbakka vestur í bæ. ( bara gaman að því )  

En já ok við fengum rétta stöffið og svo var bara brunað heim og tengt og gír og græjað vélina ( gamla vélina hennar mömmu ) nú það skal tekið fram að það var allt rétt tengt ... Nú ég set eina skyrtu og tvær narírur og 2 handklæði í vélina og ýti á 4 og ENTER vélin í gang. eftir svona ca 10 min þá fer nú hún að baula eins og Búkolla .. nú ég fer eitthvað að líta á vélina og kanna með mínum frekar auma vélahaus á Búkollu ( er búinn að skýra vélina það ) og fatta ekki hvað er að.. þannig að ég vissi ekki svarið við þessu og enginn var í salnum til að spyrja þannig að ég fékk mig til að hringja í Pabba ( hann reddar öllu ) og hann hlustaði á baulið í Búkollu og sagði mér að stoppa kvikindið eins og skot sem ég og gerði ..en um leið þá byrjaði Búkolla af buna útúr sér vatni úr loftgatinu ( sem á ekki að gerast) nú ég henti símanum frá mér og náði að grýta fötu undir þennann þvílika foss sem notaben var búinn að setja WC-ið gjörsamlega á flot og ekki nóg með það heldur fór það undir gifsvegginn og teppið á ganginum á hæðini var svona eins og Guttormur gamli tuddinn í Húsadýragarðinum hafi komið og migið þarna í dágóðann tíma.  eftir að hafa svo fattað að skrúfa fyrir vatnið hætti þessi leki eftir ca 15 kjaftfullar 5l fötur ákvað meistari Gísli Torfi að opna nú vélina og taka þetta dót útúr henni Nei Nei þá kom bara Dettifoss á fullum þunga niður á gólfið sem undirritaður var búinn að þrífa upp vatnið með 15 handklæðum síðastliðnu 3 korterinn. úff ég hugsaði þarna ekki um álfa og hugguleg heit né hvíta svani.  En þetta tókst svo á endanum að gjörsamlega sýruþvo gólfið og myndi ég ætla að þetta hafi tekið um 2 tíma að standa í þessu ( það er nefnielga ekkrt niðurfall á Wc-inu mínu)

svona hlutir geta gert lífið skemmtilegra.. og það skal tekið fram að Pabbi kom svo aftur og tékkjaði  á vélini en hún Búkolla var þá gæf og allt í sómanum

( mamma er síðan þá búinn að hringja í mig 8 sinnum á dag til að tékkja hvort Búkolla sé rétt stillt og ég fari eftir lögum og reglum um hverning ég á að koma fram við  Búkollu )  


Happy Easter

lukku lákiÞetta er Kóngurinn                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                  Og þetta er EasterBunny  easter_bunny_on_chopper_gemmy_airblown_inflatable

2 góð


Samhjálp

Jæja þá er helgin liðinn og var hún bara hin ágætasta. fyrir utan að vinna alla helgina þá skrapp ég á Árshátíð Samhjálpar á laugardagskvöldið og skemmti mér vel, þar var gúffað í sig 6 réttuð máltíð og troðið í sig ís á eftir, skemmtiatriði voru á heimsvísu en fram komu  Örn Árnason og Óskar Pétursson,Guðrún Gunnars og Valgeir Skagfjörð og hljómsveitin RASP lék  nokkra slagara en lagið pretty women var tekið snilldartökum af þessari úrvalssveit. Páll Magnússon útvarpsstjóri var heiðursgestur ásamt konu sinni. en þess ber að geta að í leiðini var verið að halda uppá 35 ára afmæli Samhjálpar og vígja húsið sem Vörður Leavý Traustason Hirðir Hvítasunnukirkjunar á Íslandi gerði.

Ég fór í Fíladelfíukirkjuna mína í dag og sá þar nokkra taka skírn og Heiðar forstöðumaður Samhjálpar predikaði af stakri prýði og einurð orðið. ( ekki laust við að flestir muni muna þessa ræðu í nokkurn tíma )

Eigið þið góða vinnuviku. sem er aðvísu fremur stutt hjá flestum.

setti inn myndir hér frá Árshátíðini     ( í myndaalbúmi Mars2008                                                                                                                                                                          

 

 

( aðsjálfsögðu fór kallinn í Bleiku skyrtuna )


LFC-NALLARNIR coming up

Já nú er það staðfest það verða tvö heitustu lið Meistaradeildarinar í ár sem leiða saman hesta sína í 8.liða úrslitunum  Liverpool- Arsenal

þetta verða all svakalegir leikir og ekki nóg með það því þeir munu mætast einnig í deildini á svipuðum tíma ..þannig að á einni viku munu þau mætast þrisvar sinnum og í öll skiptin eru þetta alveg gríðarlega mikilvægir leikir.

Ég veit fyrir víst að Steini frændi fer ávallt til Svans en þeir bræður að ég best veit halda að það sé einhver lukka sem fylgir því ..þannig að ég er að spá í að gerast kannski boðflenna og kíkja á þá og sjá þannig til þess að LFC fari áfram. 

En það er alveg ómögulegt að spá í þessa leiki -vegna þess að Arsenal hefur haft tak á LFC síðustu ár í deildini en nú er það Meistaradeildin og þar er LFC ávallt gríðarlega sterkt..þannig að þetta verða áhugaverðir leikir vægt til orða tekið.

Hinir leikirnir sem fara fram eru nú bara svona til að fylla uppí 8.liða úrslitin. Cool

Heiðar bróðir og Gósi félagi og Sigvarður eru einnig Nallafíklar þannig að þetta verður gaman. 


Live from Downtown Smokie Bay

Já sæl já fínt ..mættur í vinnuna og gleðitímar framundan í viku ..vinna allar nætur og sofa á daginn þetta gerist ekki mikið skemmtilegraW00t

Aðvísu þarf ég ekki að vinna á laugardagskvöldið vegna þess að þá verð ég í Stangarhyl á Árshátíð Samhjálpar sem í leiðini fagnar 35 ára afmæli og ætlar einnig að vígja húsið og þar ætla ég að heiðra gesti og gangandi með nærveru minni.

Mikið var nú gaman í gær hjá mér í stofuni heima að horfa á Champions Leage live from San Siro í Milan ...INTER - Liverpool 0-1 og samanlagt 0-3 . það eru bara tvö orð um það Sehr Godt. 

 

Vona að þið gangið á Guðsvegum.

kv G 


voðalega eru margir Steinar í pistlinum mínum :)

GrinJæja helgin að baki og mánudagur upprisinn  ég hef verið að sýsla þetta vanarlega síðustu daga.. á föstudaginn fór ég á víglsuathöfn í nýja húsnæðinu hjá kærleikanum í skeifuni og komu hátt í 350 manns þangað inn og var mikill stemming, sannarlega frábært framtak þar á bæ hjá þeim mönnum sem eru í forsvari fyrir því eftir að samkomuni lauk skrapp ég á AA fund.

Á laugardeginum vaknaði ég snemma og fór svo á AA fund í hádeginu og  skrapp svo eftir að hafa horft á Liverpool rústa Newcastle 3-0 ( fékk einnig hringinu frá Anfield en Steini mágur var á leiknum )  til Keflavíkur á samkomu og kveðjustund í leiðini hjá honum Gunnari vini mínum og var þar troðfullt útúr dyrum og eftir það fór ég á AA fund og var kominn heim til Reykjavíkur eitthvað eftir miðnætti og var sáttur og þreyttur eftir góðann dag.

Sunnudagurinn var tekinn snemma einnig og ég fór í hádegismat uppá Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal til hans Binna Kokks í góða steik og aðrar dásemdir. alltaf gaman að koma á meðferðarstöðina sína gömlu og fá svona anda yfir sig. skrapp í kringluna með félaga mínum en þessi félagi minn fór með mér eða ég honum á alla þessa viðburði um helgina sem ég hef verið að skrifa hér. í kringluni voru við Steini félagi örugglega einu Íslendingarnir á ferli tja kannski ekki alveg en svona í miklum minnihluta. Seinnipartinn kom Una systir og Alexandra í heimsókn og fengu kaffi og kökur og hlustuðum við á BEE GEES LIVE from New York alveg svakalega góður diskur, alltaf þegar ég heyri í þeim þá minnir það mig á Torfa frænda en hann hlustaði mikið á þá í denn. 

Heyrði í mágkonu minni í Luxenborg um helgina og það er bara kalt þarna niðurfrá +3 stiga hiti á sama tíma og það var +9 gráður hér. en aðvísu er ekki alveg að marka þetta sökum loftslags og þarna niðurfrá er enginn sjávarvindur og svoeliðis dót en þau brósi og litli prins hafa það voða gott þarna úti. um kvöldið á Sunnudag fór ég svo á samkomu hjá UNG og fór svo bara sáttur við menn og mýs að sofa í gærkveldi.

Steini frændi búinn að setja gríðarpressu á mig með að fara að ætla að margfalda einhverjum aldri við þessi hlaup sem ég náttúrulega tek ekkert mark á LoL en það er gott að hafa markmið og markmiðið mitt er nú ennþá einhverstaðar uppá Hellisheiði og er alveg að fara að detta inní hús.. ég er nú svo ýktur stundum að þegar ég dett í gírinn þá þarf frændi að fara að girða sig í brók Grin

En eigið þið góða viku og ég er að byrja svo á miðvikdagskvöld í vikutörnini minni á Hótelinu og dett svo í frí á miðvikudaeginum fyrir skírdag í viku frí ..gott að vera í fríi um páskana.

kv G

 


það er kominn mars

Mars_Earth.newþað er eitthvað svo heillandi við Mars mánuð

gæti verið vegna þess að uppáhaldið mitt er mars súkkulaði

gæti verið vegna þess að á einhvern óskiljanlegan máta hef ég oft verið í sambandi við dömur sem eiga afmæli í mars.

gæti verið vegna þess að ég er alltaf að bíða eftir að marsbúarnir  geri árás á okkur.

gæti verið vegna þess að þá veit maður að að vorið er að detta inn   


Warsteiner

Komið öll blessuð og sæl í tilefni dagsins sem er 1.mars þá ætla ég hér með að láta ykkur vita það að fyrsti bjórinn sem kom til landsins var enginn annar en hinn Þýsk-ættaði Warsteiner.

warsteiner pils 2 btl


Fyrirsögn

Jæja þá er best að setja smá blek hér niður... Ég hef átt bara þessa fínu daga í fríinu mínu og verið duglegur að gera mitt prógram eins og maðurinn sagði. síðan á föstudag hef ég farið á ca 10 AA fundi og nokkrar samkomur og það er ekki tilviljun að AA er með Einingu,Bati og Þjónusta sem sitt þríhyrnda logo. Halo

Ég fór á stórbrotna tónleika með Þursaflokkinum á Laugardag í Höllini en það var svona frekar óvænt að ég skellti mér en málið er að einn góður vinur minn bauð mér á þessa tónleika og ég er ekki frá því að þetta séu einhverjir bestu tónleikar sem ég hef farið á og hef ég farið á þá nokkra, Egill Ólafsson verður bara betri og betri og þarna var hann svo sannarlega á heimavelli blessaður kallinn.Whistling

Eurobandið komið áfram og fer allaleið í friðarlandið Serbíu þar sem mannréttindi eru víst ekki alveg að gera sig, spurning hvort við fáum ekki lífverði Silvíu Nætur til að fara með hópnum.Ninja

Svo hef ég verið að vona að íslensku sjómennirnir fái nú að veiða loðnuna sem er útí um allt hér.Police

Tottenham Deildarbikarmeistari og Steini mágur náttúrulega Happy með það Wizard

Hef fengið nýtt áhugamál en það er að stunda Heitupottana í bænum og synda 400m Bringusund sirka 3 í viku.Cool

 IJsland 009


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband